Deila þessari síðu
Matvælasjóður auglýsir eftir umsóknum þessa dagana en þetta er í þriðja sinn sem sjóðurinn auglýsir úthlutun. Í tilkynningu frá sjóðnum kemur fram að umsóknarfrestur hafi verið framlengdur til og með 26. apríl. Heildarúthlutunarfé sjóðsins er 593 milljónir króna en styrkir eru greiddir út í tvennu lagi. Helmingur við upphaf verkefnisins og helmingur þegar lokaskýrsla hefur verið staðfest af stjórn.
Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla og hliðarafurða úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvæla um land allt. Sjóðnum er heimilt að styðja við vöruþróun og markaðssókn á erlendum mörkuðum.
Markmið Matvælasjóðs er að ná til verkefna á öllum stigum, allt frá hugmyndum til markaðssetningar og hagnýtra rannsókna. Ráðstöfunarfé Matvælasjóðs samanstendur af fjárveitingu af fjárlögum hverju sinni og öðrum tekjum eftir því sem þeim er til að dreifa.
Allar upplýsingar um umsóknarferlið er að finna á vef Matvælasjóðs innan stjórnarráðsins.