Á bænum Efri-Úlfsstöðum í Landeyjum hafa Hörður Bender og fjölskylda hans síðustu ár unnið að ræktun á íslenskum hvítlauk og gulrótum með ágætum árangri. Þau eru sannkallaðir frumkvöðlar en enginn á Íslandi hefur ræktað hvítlauk með það fyrir augum að búa til vöru á markað. Matland býður upp á hvítlauk og gulrætur frá Efri-Úlfsstöðum í…
„Það hefur alltaf verið hálfgert kvennaríki á Glitstöðum“ segir Guðrún Sigurjónsdóttir bóndi. Hún og Eiður Ólason maðurinn hennar reka myndarlegt kúabú sunnanmegin í Norðurárdal. Afi og amma Guðrúnar áttu fimm stelpur og þær máttu hjálpa til í búskapnum eins og þá tíðkaðist.„Það er búin að vera samfelld búseta hjá sömu fjölskyldunni hér á Glitstöðum…
Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir er ungur bóndi og rekur garðyrkjustöðina Gróður við Flúðir. Hún er nýbúin að kaupa stöðina en hún útskrifaðist af garðyrkjubraut Landbúnaðarháskóla Íslands síðasta vor. Matland býður upp á grænmeti frá Höllu Sif á næstu vikum en fyrsti grænmetiskassinn frá Gróðri er kominn í sölu.Innihaldið í fyrsta grænmetiskassafnum frá Höllu Sif.…
Bændurnir Hjalti Egilsson og Birna Jensdóttir á Seljavöllum í Nesjum í Hornafirði hafa getið sér gott orð fyrir kartöflurækt. Matland kíkti í heimsókn á Seljavelli en þar eru ræktaðar kartöflur á rúmum 8 hekturum lands. Hluti af görðunum er undir ábreiðum svo kartöflurnar vaxi hraðar og komi fyrr á markað. Hornafjörðurinn hefur mikla sérstöðu í…
Brauðbúðingur er þekktur eftirréttur á mörgum stöðum í heiminum. Hann er til í ótal mismunandi útfærslum og sósur eða ís hafður með. Vanillu- eða viskísósur eru mjög vinsælar en mér finnst best að flækja ekkert hlutina og nota heita íssósu og smá vanilluís eða rjóma með.Nýtum brauðafganganaBrauðbúðingur er yfirleitt gerður úr brauði sem…
Í Melasveitinni undir Hafnarfjalli á nýbýlinu Narfaseli rækta svissnesku hjónin Laurent og Lola ýmiskonar grænmeti. Þau eru byrjuð að uppskera og bjóða upp á takmarkað magn í sumar af nokkrum tegundum í einum kassa hjá Matlandi. Úrvalið er breytilegt eftir því hvað er til hverju sinni en innihald hvers kassa verður auglýst með góðum fyrirvara.…
Matland býður upp á einstakar T-beinssteikur (e. T-bone) úr holdanautum af Ströndum. Steikurnar eru sérstakar fyrir það leyti að hver um sig er á bilinu 1,1-1,4 kg að þyngd og nægir fyllilega í máltíð fyrir þrjá til fjóra einstaklinga. Steikur sem þessar sjást sjaldan á borðum hér á landi en þær er hægt að panta…
Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands býður upp á námskeið um sveppi og sveppatínslu í samstarfi við fræðslusetrið Iðuna í lok ágúst.Sveppatínsla nýtur sívaxandi vinsælda og nú er að renna upp sá tími sem hægt er að finna góða matarsveppi víða um land.Í lýsingu á vef Endurmenntunar LbhÍ segir að námskeiðið henti öllum sem vilji fræðast…
Ég bjó til þessa kjúklingauppskrift fyrir matarboð og rétturinn sló aldeilis í gegn - dásamaður af öllum! Heimagert naan-brauð gerði útslagið en þau voru svo mjúk að þau minntu helst á skýjahnoðra. Ásamt brauðinu var meðlætið krydduð hrísgrjón og létt salat. Ég get sagt í fullri hreinskilni að enginn fór svangur héðan út.Ég er…
Nýr rjómaís er væntanlegur á markað frá Fjölskyldubúinu ehf. í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi sem á og rekur mjólkurvinnsluna Hreppamjólk. Fyrir eru ýmsar vörur frá Hreppamjólk á markaðnum en það vakti mikla athygli fyrr á árinu þegar fyrirtækið bauð upp á mjólk í lausu máli í verslun Krónunnar í Lindum í Kópavogi.Gullslegnar umbúðir…

