Í fyrsta sinn sem ærskinka er á boðstólum
Smátt og smátt bætast fleiri matvörur í Markaðinn hér á Matlandi. Nýjasta varan er ærskinka sem nú er fáanleg í fyrsta sinn á Íslandi, svo vitað sé. Heiðurinn af skinkunni á Sigurður Haraldsson sem var útnefndur Kjötmeistari Íslands 2022 í vetur. Sigurður gerði sér lítið fyrir og fékk gullverðlaun fyrir ærskinkuna í fagkeppni kjötiðnaðarmanna sem…
Alíslenskt korn í nýju súrdeigsbrauði
Þau tímamót urðu á dögunum að hægt er að kaupa súrdeigsbrauð sem inniheldur að öllu leyti íslenskt korn. Það eru bræðurnir Sigfús og Guðmundur Guðfinnssynir í handverksbakaríinu Brauðhúsinu í Grímsbæ í Reykjavík sem eiga heiðurinn af brauðbakstrinum. Þeir hafa bakað lífræn súrdeigsbrauð frá árinu 1990 en hingað til notað erlent korn í baksturinn að mestu.…
Bændur og smáframleiðendur leiða saman hesta sína
Beint frá býli (BFB) og Samtök smáframleiðenda matvæla (SSFM) hafa undirritað samkomulag sem kveður á um náið samstarf. Meðal annars munu félögin vera með sameiginlegan fjárhag og framkvæmdastjóra. Samstarfið var innsiglað á aðalfundi Beint frá býli, sem haldinn var sunnudaginn 24. apríl. Þar var samþykkt mótatkvæðalaust að félagið yrði aðildarfélag inni í Samtökum smáframleiðenda matvæla.…
Er „brottkast“ stærsta vandamál orkugeirans?
Mér þykir nokkuð gaman að velta fyrir mér stóru myndinni varðandi verðmætasköpun á Íslandi. Við Íslendingar búum svo vel að njóta ríkra náttúrugæða og hefur með þeim auðnast að skapa sterkan efnahagsgrundvöll. Fiskur, ferðamenn og stóriðja hafa verið hryggjarstykki í auðlindadrifnu hagkerfi, sem góðu heilli hefur orðið margbrotnara og þar með seigara (e. resilient) upp…
„Veislan er óður til matarins og landsbyggðarinnar“
Glænýir íslenskir matar- og ferðaþættir verða á dagskrá Ríkissjónvarpsins á næstu vikum. Þættirnir heita Veislan en þar munu félagarnir Gunnar Karl Gíslason matreiðslumeistari á Dilli og Halldór Laxness Halldórsson, Dóri DNA, vínspekúlant og skemmtikraftur ferðast um landið og njóta lífsins lystisemda. „Þættirnir fjalla um mat, landið okkar, landslagið, matar- og tónlistarmenningu á Íslandi í…
Gróðurhús í Öxarfirði og grænir iðngarðar á Reykhólum fá styrki
Innviðaráðuneytið hefur úthlutað 120 milljónum króna í styrki til átta verkefna sem ætlað er að efla byggðir landsins. Greint er frá því að vef ráðuneytisins að styrkirnir renni til sértækra verkefna á sóknaráætlunarsvæðum í samræmi við stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024. Meðal verkefna sem tengjast matvælaframleiðslu eru styrkir til jarðhitanýtingar í gróðurhúsum í Öxarfirði og…
Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard