Skip to content Skip to footer

Lífrænt kálfasnitsel

3.027 kr.3.240 kr.

Snitsel af mjólkurkálfi frá lífræna búinu á Neðra-Hálsi í Kjós. Kálfakjöt er ljósara en kjöt af fullorðnum gripum. Milt og ljúft bragð. Hið eina sanna Vínarsnitsel er með kálfakjöti.

Kg-verð 5.890 kr. Frystivara.

Framleiðandi er Biobú. Gripunum er slátrað í Sláturhúsi Vesturlands í Brákarey sem er eina lífrænt vottaða stórgripasláturhús landsins um þessar mundir.

Viðskiptavinir geta valið um að fá kjötið sent heim til sín gegn vægu gjaldi eða sótt til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík, daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Matland sendir SMS þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendum með Samskipum um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Merkimiðar: , , Vörunúmer:27768

Lýsing

Hvernig á að steikja snitsel?

Björn Teitsson deilir ráðum hér með lesendum Matlands hvernig á að útbúa hið fullkomna snitsel.

Katla Gunnarsdóttir segir hér frá því hvernig Danir vilja hafa sitt snitsel.


Meðlæti með snitzeli er gjarnan kartöflur eða kartöflusalat, sýrt kál og ekki má gleyma sítrónunni.

Bændurnir á Neðra-Hálsi í Kjós eru þau Dora Ruf og Kristján Oddsson. Þau hlutu landbúnaðarverðlaunin fyrir sinn búskap á Búnaðarþingi 2022. Dora og Kristján eru sannkallaðir frumkvöðlar í lífrænni ræktun á Íslandi. Mynd / TB

Lífrænt kálfasnitsel. Kg-verð er 5.890 kr.

Kjötið er frosið.

Næringargildi í 100 g:

Orka 711 KJ/170 kkal
Fita 13,8 g
– þarf af mettuð: 5,6 g
Kolvetni: 0 g
– þar af sykurteg. 0 g
Prótein 19 g
Salt 0 g

Innihald: Kálfakjöt – snitsel
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Neðra-Hálsi í Kjós.
Framleiðandi: Biobu ehf. í Reykjavík
Sláturhús nr. A997 – Sláturhús Vesturlands í Brákarey í Borgarnesi
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Kálfasnitsel

514 g, 520 g, 522 g, 526 g, 528 g, 536 g, 542 g, 548 g, 548 g, 550 g

Þér gæti einnig líkað við…