Um áramót taka í gildi verðbreytingar á grænmetiskössum Matlands. Verð þeirra hefur verið óbreytt frá upphafi en þeir hækka nú í takti við almennar verðlagsbreytingar og hækkanir hjá birgjum.
Verð fyrir áskrift verður 4.995 kr. pr. kassa og stakir kassar munu kosta 5.260 krónur. Flutningsgjöld taka ekki breytingum núna um áramót.
Fyrsti grænmetiskassi nýs árs…
Með aukinni umhverfisvitund neytenda og auknum kröfum um upplýsingagjöf fyrirtækja verður enn mikilvægara en áður að fyrirtæki reikni og upplýsi um kolefnisspor framleiðsluvöru sinnar. Kolefnisspor er sú heildarlosun gróðurhúsalofttegunda sem einstaklingur, viðburður (t.d. tónlistarhátíð), fyrirtæki (t.d. álframleiðandi) eða framleiðsla tiltekinnar vöru (t.d. kjöts) veldur á einu ári.
Sporið er myndlíking fyrir áhrifin sem einstaklingurinn, viðburðurinn,…
Sölufélag garðyrkjumanna hefur undanfarin ár valið „ræktendur ársins“ innan sinna raða. Í ár hlutu hjónin Inga Sigríður Snorradóttir og Óli Finnsson á garðyrkjustöðinni Heiðmörk í Laugarási þennan heiður.
Óli og Inga hafa komið með nýjungar inn á markaðinn eins og eldpipar, sætar paprikur og snakkpaprikur. Þessar tegundir hafa slegið í gegn og njóta sífellt…
Matland býður upp á fullmeyrnað lambakjöt frá bænum Árdal í Kelduhverfi. Kjötið kemur af heiðargengnum lömbum sem ganga á grónum afrétti með lynggróðri og kjarri. Bændurnir í Árdal markaðssetja vörurnar sínar undir vörumerkinu „Grænlamb“ en einungis afurðir sauðfjár sem gengur í sameiginlegum beitilöndum Keldhverfinga eru markaðssettar og seldar undir merkinu. Lömb merkt Grænlambi hafa…
Matland hefur til sölu fyrsta flokks sérmeyrnað lambakjöt frá fyrirmyndarbúinu Glitstöðum í Borgarfirði. Mjúkt og meyrt kjöt sem hefur fengið að hanga í sjö daga. Þegar kjötið fær að hanga minnkar vökvinn í því og það verður meyrara. Handverkssláturhúsið í Brákarey á heiðurinn af kjötvinnslunni og frágangi.
Glitstaðir eru blandað bú með kýr og kindur…
Hráefni fyrir fjóra
2 kg tómatar
4 msk góð ólívuolía
4 hvítlauksrif
20 g grænmetiskraftur
4 dl vatn
60 g ferskt kóríander (má skipta út fyrir basilíku)
2 tsk salt
Pipar og meira salt eftir smekk
Grænmeti í áskrift
Frá: 5.320 kr. / á mánuði
Veldu kosti
LEIÐBEININGAR
Saxið tómata gróft og setjið…
Íslenska Fífilbrekkuhunangið frá Hveragerði er nú komið á krukkur og er í boði á Matlandi í takmörkuðu magni. Hunangið er afrakstur býflugna sem safna frjókornum og blómasafa í hlíðum Reykjafjalls í Ölfusi. Flugurnar eru oft sjáanlegar í görðum í Hveragerði þar sem þær sækja í allskonar blóm t.d. fífla, víði, blóðberg, mjaðurt og ýmis garðablóm.…
Matland býður upp á heila skrokka af lambakjöti frá bænum Miðhúsum á Ströndum. Það er fátt betra en að eiga nóg af lambakjöti í frystikistunni. Gæðalamb frá bændunum Viðari Guðmundssyni og Barböru Guðbjartsdóttur.
Fyrsta afhending haustsins verður í Reykjavík þriðjudaginn 3. október.
Boðið er upp á 4 tegundir af sögun: A. Bæði…
Matland kynnir með stolti lífrænt mjólkurkálfakjöt frá Biobú. Kjötið kemur frá bændunum Dóru Ruf og Kristjáni Oddssyni á Neðra-Hálsi í Kjós.
Kálfakjötið er ljósara en kjöt af fullorðnum gripum og er bæði milt og ljúft á bragðið.
Um takmarkað magn er að ræða en í þetta sinn eru ýmsar steikur í boði, s.s.…
Matland býður upp á kvígukjöt frá Guðrúnu og Eiði á Glitstöðum. Þetta er kjötið sem margir matreiðslumenn elska og bændurnir sjálfir velja á sitt borð. Kjötið er búið að hanga í 14 daga og er afar meyrt og fínt. Svo er rúsínan í pylsuendanum - kvígan tekur ekki eins harkalega í pyngjuna eins og stóru…
