Grænmetiskassar Matlands í boði á Selfossi
GK-bakarí við Austurveg á Selfossi bætist í hóp dreifingarstaða fyrir grænmetiskassa Matlands frá og með 25. ágúst næstkomandi. Það er ekki á önnur bakarí hallað þegar við fullyrðum að GK-bakarí er eitt vinsælasta kaffihús og handverksbakarí Suðurlandsundirlendisins. Með grænmetiskössum Matlands geta kaupendur gengið að glænýju grænmeti vísu og sumt sem er í kössunum er…
Ristaðar svínakótelettur með skyrbernaise
Svínakótelettur eru ljúffengar og safaríkar ef þær eru eldaðar rétt. Hér er uppskrift úr fórum Bjarna Gunnars Kristinssonar matreiðslumeistara. Skyrbernaise-sósan er einstakt leynivopn sem við hvetjum lesendur til að prófa. Hrá­efni 800-1000 g svínakótelett­ur (4 stk.) Krydd­lög­ur 100 ml maltöl 50 ml Sweet soja sósa 30 ml ses­a­mol­ía 1 stk. kjarn­hreinsaður eldpip­ar…
Fullt af nýju grænmeti í boði
Síðsumars er mikill annatími hjá garðyrkjubændum. Þurrkar í júlí hafa þó gert mörgum erfitt fyrir og útiræktað grænmeti er aðeins seinna á ferðinni en í meðalári. En þessa dagana sjáum við hverja tegundina á fætur annari streyma frá bændum. Matland setur allt það nýjasta sem til er í grænmetiskassana sem dreift er á fimmtudögum í…
Hreinræktað Aberdeen Angus holdanaut á Matlandi
Matland býður til sölu ungnautakjöt af hreinræktuðu Aberdeen Angus holdanauti frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Kjötgæðin eru rómuð og kjötnýting mjög góð. Fallþungi nautsins sem Matland fékk í sinn hlut reyndist vera tæp 330 kg og flokkaðist í gæðaflokkinn UNR+3+. Nautið var einungis tæplega 14 mánaða við slátrun. Það var látið hanga í…
Matland í samstarf við Pikkoló
Grænmetiskassa Matlands er nú hægt að nálgast á fimmtudögum í sjálfsafgreiðslustöðvum Pikkoló í Vatnsmýri í Reykjavík og við Byko í Breiddinni í Kópavogi. Fleiri afhendingarstaðir verða kynntir á næstu mánuðum. Þjónustan verður fyrst um sinn eingöngu í boði fyrir áskrifendur að grænmetiskössunum en í framtíðinni er markmiðið að koma fleiri vörum Matlands inn í Pikkolóstöðvarnar.…
Grillsumarið á Matlandi
Matland býður upp á fjölbreytt úrval af kjöti sem hentar vel á grillið. Sumarið er komið og þá er við hæfi að svipta hulunni af grillinu. Hjá Matlandi er allt kjöt upprunamerkt bæjunum þaðan sem framleiðslan kemur. Við leggjum mikla áherslu á að viðskiptavinir séu vel upplýstir um vörurnar og þá framleiðendur sem standa að…
Roastbeef – Klassíkerinn í smörrebrauðinu
Roastbeef smörrebrauðsstykkið er í miklu uppáhaldi hjá flestöllum, en uppruninn er jú, afgangur af steikinni frá kvöldinu áður. Kjötið er sneitt þunnt og listilega lagt upp dagana á eftir í hádegismat, parað með remúlaði, sultuðum agúrkum og steiktum lauk. Í lokin er skreytt með fersk-skrapaðri piparrót og karsa. Hráefni Innra læri af nauti, einnig er…
Besti vinur steggsins – Grillpakkinn frá Matlandi
Það er augljóslega glatt á hjalla þegar steggjaveisla á sér stað. Og stemningin verður hreint ekkert verri við að fá grillmat í hæsta gæðaflokki – en um er að ræða 10 manna grillpakka frá Matlandi með pylsum, hamborgurum og nautakjöti fyrir grillpinna. Við félagarnir og Margrét vinkona okkar auðvitað, getum hæglega mælt með þessum pakka…
Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard