Rúgbrauðið hefur fylgt okkur Íslendingum í gegnum árin og þykir ómissandi með ýmsum mat. Hvað er betra með soðningunni eða plokkfisknum en nýbakað rúgbrauð með miklu smjöri? Það er engin síldarveisla án rúgbrauðs og mörgum finnst gott að borða það með reyktum eða gröfnum laxi. Þessa uppskrift nota ég á dvalarheimilinu þar sem ég starfa…
Árlega fellur til mikið magn af ærkjöti á Íslandi en það er sjaldan á boðstólum í verslunum nema sem vinnsluvörur eða í takmörkuðu magni. Þeir sem einu sinni hafa smakkað ærkjöt vita að það er bæði meyrt og bragðmikið sé það rétt verkað og af góðum gæðum.Heildarframleiðsla á kindakjöti er um 9.400 tonn…
Það hafa örugglega flestir sem búsettir eru á Íslandi gætt sér á brauðtertum í einhverri veislunni. Brauðtertan er sögð eiga uppruna sinn að rekja til Svíþjóðar þar sem hún er afar vinsæl en einnig þekkist til hennar í Finnlandi og Eystrasaltslöndunum þar sem þær eru fylltar með ýmsu gúmmelaði. En undirstaðan er yfirleitt sú sama…
Frederik Kopsch er áhugakokkur sem býr í Lundi í Svíþjóð og heldur úti Facebook-síðunni „Sænski kokkurinn“. Þar birtir hann fjölda ljúffengra uppskrifta og þar á meðal þessa þar sem bláber eru í aðalhlutverki.„Í þetta skiptið gerði ég bláberjaböku. Þessi uppskrift er orðin uppáhalds bökuuppskriftin mín. Það eru svo margir ávextir og ber sem maður…
Laufey Rós Hallsdóttir matráður á Eskifirði fær seint nóg af fiskmeti. Hún deilir með lesendum Matlands frábærri og einfaldri uppskrift að ofnbökuðum fiski þar sem pestó, ostur og tómatar leika lykilhlutverk.„Það er alveg sama hversu oft ég borða fisk eða elda fyrir aðra, hann er alltaf jafn góður! Eitt hollasta og besta hráefni sem…
5 kg poki af Helgu.Nú munu margir fagna og hverfa í huganum aftur í tímann þegar kartöfluafbrigðið HELGA var á hvers manns borði. Þær eru fágætari í dag en mörgum finnst Helgan vera besta matarkartaflan - en það er auðvitað smekksatriði. Matland býður upp á hornfirska Helgu í 5 kg pokum á hagstæðu verði. …
Nanna Rögnvaldardóttir deilir hér uppskrift að hreindýrabollum með sveppa- og bláberjasósu með lesendum Matlands. Þetta er sannkallaður sparimatur en það er líka hægt að búa til klassískar bollur (sjá uppskrift hér). Nanna mælir með að krydda hreindýrahakkið hóflega til þess að kæfa ekki hreindýrabragðið.Magurt hreindýrahakk getur orðið býsna þurrt þegar það er matreitt og…
Fyrirtækið Aldingróður í Vestmannaeyjum er þriggja ára gamalt frumkvöðlafyrirtæki sem ræktar um 20 tegundir af sprettum. Fyrstu ræktuðu sprettubakkarnir sem fyrirtækið framleiddi voru afhentir veitingahúsinu Slippnum í Vestmannaeyjum sumarið 2019. Spretturnar frá Aldingróðri hafa nær eingöngu verið í boði fyrir veitingahús og mötuneyti hingað til og fást ekki í verslunum. Matland býður upp á sinnepssprettur í grænmetiskassa…
Fátt er þjóðlegra og betra en íslensk kjötsúpa. Matland býður til kjötsúpuveislu þar sem nýtt grænmeti og lambakjöt af nýslátruðu frá bænum Miðhúsum á Ströndum er í aðalhlutverki. Það eru margar uppskriftir til af kjötsúpu en við mælum með að fólk eldi drjúgan skammt og bjóði fólki í mat. Sumum finnst kjötsúpan raunar best við aðra og…
Auðvitað er hægt að gera flest það sama úr hreindýrahakki og t.d. nautahakki. Best er þó að krydda ekki mjög mikið til að kæfa ekki hreindýrabragðið. Magurt hreindýrahakk getur orðið býsna þurrt þegar það er matreitt og því inniheldur besta hakkið töluvert af fitu – þegar allt kemur til alls er bragðið ekki síst í…

