Matland er vefverslun með upprunamerkt matvæli og ýmsan varning sem tengist mat og eldamennsku. Við bjóðum meðal annars upp á ferskt og frosið kjöt, grænmetiskassa, krydd, olíur og fiskmeti. Langmest af vörunum eru íslenskar nema þær sem ekki eru framleiddar hérlendis.
Viðskiptavinir sjá allt vöruúrvalið á Matlandsvefnum. Þar er hægt að velja sínar vörur, panta…
Nautasnitsel af holdmiklum gripum er bæði meyrt og bragðgott. Vel heppnað snitsel slær alltaf í gegn hjá bæði ungum sem öldnum. Í þessari uppskrift er notaður panko-raspur, sem er loftkenndur japanskur brauðraspur sem gerir hjúpinn sérstaklega stökkan og léttan. Ef þú vilt spara þér tímann við að súrsa grænmetið þá geturðu einfaldlega borið réttinn fram…
Hrossagúllas er frábært í pottrétti. Það er bragðgott og meyrt undir tönn eftir hægeldun. Prófið þennan klassíska rétt, hrossagúllas í brúnni sósu.
Hráefni fyrir 4-5 manns
1 kg hrossagúllas
2 msk olía eða smjör til steikingar
2 stórir laukar, saxaðir
2–3 hvítlauksgeirar, pressaðir
2 msk hveiti
1 msk paprikuduft
1 tsk kúmen
1 tsk timían…
Það eru margar leiðir að gera góða kartöflumús. Þessi er í fínni kantinum og hentar vel með sparimat.
1 kg bökunarkartöflur
150 g smjör
400 ml rjómi
Sjóðið kartöflur í potti með salti í um 20 mín. eða þangað til að þær eru soðnar.
Hellið vatninu af þegar þær eru orðnar mjúkar í gegn og…
„Beef bourguignon“ er klassískur franskur réttur úr nautakjöti sem er hægeldað í rauðvínssósu með grænmeti og kryddum. Þetta er einn af þekktustu réttum frönsku matargerðarhefðanna og á rætur sínar í Burgúndí-héraði.
Aðal innihald „Beef bourguignon“ eru bitar af nautakjöti sem eru brúnaðar og soðnir niður í rauðvíni, oft með lauk, gulrótum, hvítlauk og kryddum eins…
Ég var svo heppin að fá að prófa Angus nautasnitselið frá Stóra-Ármóti og það var bara með því betra kjöti sem ég hef fengið í langan tíma. Mig langaði að prófa að gera eitthvað annað með snitselið heldur en þetta dæmigerða í raspi. Og ég sá ekki eftir því. Þessi uppskrift er kannski sterk fyrir…
Matland lætur ekki sitt eftir liggja í jólamánuðinum og býður upp á margskonar góðgæti. Árstíðarbundnar vörur eins og grafið kjöt og jólasíld er gaman að snæða. Eitthvað alveg sérstakt og spari. Við afhendum vörur alla daga á aðventunni. Um að gera að skoða úrvalið og velja hvað hentar þér.
Photo by Art Bicnick.
Við settum saman…
Ég fékk þá skyndihugdettu í vinnunni um daginn, eftir að hafa keypt mér þessi fínu formkökubrauð í Hagkaup, að prófa eitthvað alveg nýtt sem ég hafði ekki smakkað áður. Úr því komu þessar svaka fínu og bragðmiklu kökur sem slógu í gegn hjá öllum þeim sem smökkuðu. Það skemmir ekki fyrir að hún uppskriftin er…
Það er einfalt og fljótlegt að gera gott snitsel. Lykilatriði er að vera með gott kjöt sem er meyrt og mjúkt undir tönn. Kjötið á myndunum er nautasnitsel en sömu lögmál gilda um grísasnitsel eða kálfasnitsel. Allt mjög gott!
Þú þarft að hafa þessi hráefni við hendina og þá er eftirleikurinn auðveldur:
1 pk…
Bændurnir Ævar Austfjörð og Ása Sif Tryggvadóttir búa á smábýlinu Hlemmiskeiði 1 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Þau kalla búskapinn sinn „Litla búgarðinn“ en þar er megináhersla lögð á dýravelferð og umhverfisvænar aðferðir í stóru sem smáu. Ævar og Ása ala m.a. grísi sem eru frjálsir innan stórs beitarhólfs. Þar éta þeir gras og er líka…
