Matland hefur tekið í sölu takmarkað magn af ungnautakjöti frá Hvammi í Ölfusi sem er selt undir vörumerkinu Ölnaut. Kjötið er frábrugðið öðru nautakjöti á markaðnum fyrir þær sakir að nautin eru alin á bjórhrati, byggi og íslensku heyi alla sína ævi. Síðustu þrjá mánuðina fá þau einn til tvo lítra af bjór á dag…
Steiktar kleinur eru lostæti með kaldri mjólk eða kaffibollanum. Mörg eigum við minningar um kleinudallinn hjá ömmu sem var endalaus uppspretta af bragðgóðum kleinum. Hér er uppskrift sem var að finna í handskrifaðri uppskriftabók ömmu einnar í Kópavogi.
Hráefni
1 kg hveiti
190 g sykur
120 g smjör
2 tsk. hjartasalt
1 bolli súrmjólk
5…
Nanna Rögnvaldardóttir dregur upp úr sarpinum tvær skotheldar uppskriftir þar sem reykt ýsa er í aðalhlutverki. Manstu hvað reykta ýsan í gamla daga var góð?
Matland býður upp á reykta ýsu frá Hnýfli í Eyjafirði sem landað er á Dalvík. Alls 1,5 kg af reyktri gæðaýsu í loftþéttum umbúðum, roðflettri og skorinni í bita.
Reykt…
Fyrir rétt rúmum áratug kynntist ég hrognunum aftur, þá á klassískum smörrebrauðsveitingastað í miðborg Kaupmannahafnar. Ég var vön þeim frá barnæsku sem kvöldmat, soðnum og bornum fram með smjöri, kartöflum og fiski. Algert lostæti.
Í dag bíð ég alltaf í eftirvæntingu eftir janúar – en þá er jólatörnin búin með sínu mikla kjötáti og ferskt…
Fiskbollur eða fiskibollur eru ljómandi góður hversdagsmatur sem þarf þó alls ekki að vera neitt hversdagslegur. Það er ekki mikið mál að búa þær til en svo er líka hægt að kaupa ágætis bollur sem búið er að steikja fyrir mann, hita þær upp og bera fram með einhverju góðu meðlæti. Ég hef jafnvel heyrt…
Á Grímsstöðum í Reykholtsdal í Borgarfirði reka hjónin Jóhanna Sjöfn Guðmundsdóttir og Hörður Guðmundsson sauðfjárbú og lítið sláturhús með kjötvinnslu og iðnaðareldhúsi. Vörurnar þeirra eru markaðssettar undir heitinu „Grímsstaðaket“. Þau hafa rekið búið á Grímsstöðum frá því árið 2017 þegar þau tóku við af foreldrum Jóhönnu.
Matland býður nú í fyrsta sinn til sölu…
Lambalærissneiðar eru algjör herramannsmatur og hægt að útbúa á marga vegu, steiktar, grillaðar, í raspi og pottrétti svo eitthvað sé nefnt. Þær eru fínasta tilbreyting frá hinu hefðbundna heileldaða lambalæri. Ég ákvað að prufa að elda þær á öðruvísi hátt en ég er vön og ég get alveg sagt að það kom ljómandi vel út.…
Gestir í hátíðarkvöldverði Klúbbs matreiðslumeistara, sem alltaf er haldinn í byrjun árs, fengu nautarif í aðalrétt að þessu sinni. Það er svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir það að nautið var ættað frá búinu Hvammi í Ölfusi og alið á bjórhrati og ekta íslenskum bjór síðustu vikurnar fyrir slátrun. Sagt er að sannir…
Dóra Svavarsdóttir matreiðslumeistari býður upp á námskeið í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík í janúar þar sem meginumfjöllunarefnið er matur og loftslagsbreytingar.
„Matvælaframleiðsla ber ábyrgð á um 1/4 af losun gróðurhúsloftegunda á heimsvísu. Því skiptir gríðarlega miklu máli að við séum meðvituð um hvað við veljum á diskinn okkar, hvernig við meðhöndlum það og nýtum. Enginn einn…
Reykta ýsu er hægt að matreiða á marga vegu. Hér eru uppskrift fyrir 2-3 einstaklinga þar sem meðlætið er linsubaunir og spínat með hollenskri sósu.
Hráefni fyrir 2-3
400-500 g reykt ýsa 250 ml mjólk pipar
Linsur með spínati
200 ml puy-linsur
1/2 rauðlaukur, saxaður
1 sellerístöngull, saxaður
1 lárviðarlauf
1 timjankvistur
1 tsk…
