Uppskriftir

Schnitzel er gott með svelljökulhrímuðum bjór
Til að byrja með er rétt að taka fram að í hefðbundnu Vínarsnitzeli er jafnan kálfakjöt. Það þýðir þó ekki að svínasnitzel sé ófáanlegt í Austurríki, síður en svo. Í Þýskalandi er svínasnitzel mun algengara en báðir réttir eru matreiddir á svipaðan máta. Einhverjar sögur segja að rétturinn hafi borist til Austuríkis frá Ítalíu snemma…
Pastaskeljar fylltar með söltuðu hrossakjöti
Íslendingar hafa frá örófi alda borðað hrossakjöt þó þjóðin skiptist í tvennt þegar hrossakjötsát er annars vegar: þeir sem snæða hrossakjöt og þeir sem láta það ekki inn fyrir sínar varir. Í seinni tíð hefur hrossakjöt ekki alltaf verið fáanlegt í verslunum og það er mjög lítill hluti af heildarkjötneyslu okkar. Þjóðir eins og Ítalir…
Hrognabrækur á danska vísu
Fyrir rétt rúmum áratug kynntist ég hrognunum aftur, þá á klassískum smörrebrauðsveitingastað í miðborg Kaupmannahafnar. Ég var vön þeim frá barnæsku sem kvöldmat, soðnum og bornum fram með smjöri, kartöflum og fiski. Algert lostæti. Í dag bíð ég alltaf í eftirvæntingu eftir janúar – en þá er jólatörnin búin með sínu mikla kjötáti og ferskt…
Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard